FISK Seafood kaupir hlut í Steinunni hf. í Ólafsvík

Gengið hefur verið frá samkomulagi um kaup FISK Seafood ehf., í gegnum dótturfélag sitt, á 60% eignarhlut í útgerðarfélaginu Steinunni hf. í Ólafsvík sem gert hefur út vertíðarbátinn Steinunni SH-167. Í fréttatilkynningu sem send var fjölmiðlum kemur fram að fimm bræður og fjölskyldur þeirra hafi rekið félagið í u.þ.b. hálfa öld.

Eftir kaupin munu tveir bræðranna, þeir Brynjar og Ægir Kristmundssynir, eiga ásamt fjölskyldum sínum sitt hvorn 20% eignarhlutinn í Steinunni hf. og halda áfram störfum sínum sem skipstjóri og vélstjóri Steinunnar SH-167 en aðrir eigendur selja hluti sína í félaginu. Engar breytingar eru fyrirhugaðar á starfsemi félagsins í Ólafsvík aðrar en þær sem lúta að frekari uppbyggingu og sóknarfærum.

Í tilkynningunni segir að markmið FISK Seafood með kaupunum sé að styrkja umsvif sín í útgerð vertíðarbáta og hafa nokkur skref verið stigin í þá átt á undanförnum misserum. Nálægð Snæfellsnessins við matarkistur Breiðafjarðar sé afar heppileg til slíkrar starfsemi.

Ennfremur kemur fram að öflugur rekstur dótturfélags FISK Seafood, Soffaníasar Cecilssonar ehf. í Grundarfirði, geri frekari uppbyggingu á þessum slóðum enn fýsilegri. Það sé skoðun stjórnenda FISK Seafood að Snæfellsnesið sé í raun eitt atvinnusvæði og búi yfir miklum tækifærum til að styrkja stöðu sína á sviði fjölbreytts sjávarútvegs á komandi árum.

„Eftir meira en fimmtíu ára samfellda sjósókn þótti eigendum Steinunnar hf. kominn tími til þess að stokka upp spilin, sækja sér liðsstyrk og bæta vindi í seglin. Þegar tækifæri gafst til þess að snúa bökum saman með þeim framsæknu hugmyndum sem FISK Seafood hefur oft tjáð sig um þegar kemur að útgerð á Snæfellsnesi gengu viðræður hratt fyrir sig. Það er mikill metnaður af hálfu beggja aðila til þess að blása til frekari sóknar í útgerðinni frá Ólafsvík og efla um leið atvinnustarfsemi á Snæfellsnesinu öllu,“ segir í tilkynningu FISK Seafood.

„Við erum þakklátir fyrir það að þessi langi rekstur fjölskyldunnar hafi nú fengið tækifæri til kraftmikillar endurnýjunar. Innkoma Friðbjörns Ásbjörnssonar með mikla þekkingu á aðstæðum útgerðarinnar á Snæfellsnesi og hið sterka bakland FISK Seafood gefur góð fyrirheit um framhaldið. Samstarf okkar er ekki eingöngu grundvallað á metnaðarfullum markmiðum heldur einnig langri vináttu héðan af nesinu og gagnkvæmu trausti. Það skiptir miklu máli,“ segja þeir bræður Brynjar og Ægir Kristmundssynir.

Friðbjörn Ásbjörnsson segir þetta stórt og mikilvægt skref fyrir FISK Seafood í sókn sinni til aukinnar fjölbreytni í útgerð, vinnslu og sölu íslensks sjávarfangs. „Við lítum á Snæfellsnesið sem mikilvægan hlekk fyrir áframhaldandi sókn okkar í sjávarútveginum og fyrir mig persónulega er auðvitað ánægjulegt að koma með þessum hætti til baka á æskustöðvarnar. Til viðbótar er ég viss um að það verður ákaflega lærdómsríkt að vinna með þeim bræðrum. Þeir hafa sótt sjóinn á þessum slóðum af miklu harðfylgi og hafa þekkingu og áræði sem ég hef dáðst að í áratugi. Steinunn hefur verið með aflahæstu bátum landsins í langan tíma og það er mikið tilhlökkunarefni að koma að þessari öflugu útgerð frá Ólafsvík á komandi árum.“

Steinunn SH 167 er 153ja rúmlesta dragnótarbátur, smíðaður árið 1971 hjá Stálvík í Garðabæ. Fiskveiðikvóti félagsins er alls ríflega ellefu hundruð tonn í fimmtán tegundum, m.a. um 850 tonn í þorski auk ýsu, ufsa, skarkola o.fl. FISK Seafood greiðir ríflega 2,5 milljarða króna fyrir eignarhlut sinn í Steinunni hf. og eru viðskiptin gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

 

 

 

 

 

 

Fleiri fréttir