Fornbílarallý við Skagfirðingabúð

Á mánudaginn munu erlendir fornbílar heimsækja Sauðárkrók og efnt verður til fornbílarallýs á bílastæðinu við Skagfirðingabúð. Er um að ræða ökumenn sem eru að keppast við að aka hringinn um landið. Eru þeir á vegum félagsskapar sem kalla sig heroevents og er elsti bíllinn árgerð 1933.

Reiknað er með að fyrstu bílarnir verði komnir á Sauðárkrók um kl. 14 á mánudaginn og fyrsti bíll fari í brautina kl. 14:41. Bílaklúbbur Skagafjarðar verður hópnum til aðstoðar og á meðfylgjandi mynd má sjá svæðið þar sem rallýið fer fram. Nánar má lesa um hópinn og viðburðinn hér.

 

Fleiri fréttir