Forval VG í Norðvesturkjördæmi
Aðalfundur kjördæmisráðs VG í Norðvesturkjördæmi fór fram á Hvanneyri síðastliðinn laugardag, þann 11. júní. Á fundinum var samþykkt að fram fær forval vegna komandi alþingiskosninga, miðað er við að forvalið fari fram seinnipartinn í ágúst næstkomandi og kosið verði um röðun í sex efstu sæti listans.
Á Facebook-síðu VG og óháðra í Skagafirði kemur fram að jafnframt var kosin kjörstjórn til að sjá um framkvæmd forvalsins og gera tillögu til kjördæmisráðs um uppröðun á framboðslista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi.