Fyrirsjáanlegt er að biðlisti verði eftir leikskólaplássum á Hofsósi
Jón Hilmarsson, skólastjóri Grunnskólans austan Vatna hefur sent Fræðslunefnd Skagafjarðar erindi þar sem hann lýsir áhyggjum sínum vegna fyrirsjáanlegs biðlista í leikskólanum á Hofsósi frá og með skólaárinu 2011.
Nú eru þar 16 börn og ljóst þykir að ekki er hægt að bæta við fleiri börnum við núverandi húsnæðisaðstæður. Fræðslunefnd samþykkti á fundi sínum að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011.