Fyrirtækið áfram á Sauðárkróki
Nýverið keypti félagið Ölnir ehf, sem staðsett er fyrir sunnan, Króksverk á Sauðárkróki. Ekki stendur til að flytja starfsemi Króksverks frá Króknum að sögn Péturs Bjarnasonar hjá Ölnir ehf.
Er blaðamaður Feykis spyr Pétur hvort kaupin á Króksverki tengist fyrirhugaðri byggingu hótels á Flæðunum á Sauðárkróki skellir hann upp úr. „Ég er ættaður úr Skagafirðinum og veit að Skagfirðingar kunna að leggja saman.“ Pétur heldur áfram „Þetta tengist ekki beint byggingu á hóteli á Sauðárkróki en þetta getur allt haft áhrif.“ Hann segir að ástæðan fyrir kaupunum sé ekki fyrirhugaðar framkvæmdir á hótelinu en þó sé það verkefni sem þeim sé mikið í mun að komist í gang. „En þetta hefur allt samlegðaráhrif, þú skilur.“ Pétur segir að meginástæðan fyrir kaupunum á Króksverki séu kaup á Norðurbik sem er malbikunarstöð á Akureyri.