Glæsileg fjáröflunarsamkoma í tilefni Mottumars - FeykirTv
Kiwanisklúbburinn Drangey og Krabbameinsfélag Skagafjarðar stóð fyrir glæsilegri fjáröflunarsamkomu í menningarhúsinu Miðgarði sl. laugardag. Fjöldi manns var þar saman komið til að hlýða á fræðsluerindi og söngatriði en þar afhentu jafnframt Kiwanismenn einn fullkomnasta speglunarbúnað landsins til Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Sauðárkróki, sem keyptur var fyrir afrakstur umfangsmikillar söfnunar.
Þar var jafnframt skrifað undir samning um búnaðinn og fimm ára verkefni um skimun fyrir ristilkrabba. FeykirTv var á staðnum og ræddi m.a. við Ólaf Jónsson svæðisstjóra hjá Kiwanis um söfnunina og fangaði stemninguna á filmu – sjón er sögu ríkari.
http://youtu.be/c55-sbd-rk8