Gleðiganga Árskóla - Myndir
Nemendur og starfsfólk Árskóla gengu sína árlegu gleðigöngu í morgun. Gengið var frá Árskóla að sjúkrahúsinu og þaðan niður í bæ og snúið við á Kirkjutorgi. Gleðigangan endaði svo með grillveislu við Árskóla.
Það var örlítið kalt úti og vætusamt en enginn lét það á sig fá og gleðin var við völd. Flestir mættu í litskrúðum klæðnaði og sumir í búningum. Blaðamaður Feykis brá sér í gleðigöngu Árskóla og smellti nokkrum myndum.