Grasið betra í Húnavatnssýslu?

Eitthvað virðist Skagfirskum kindum þykja grasið grænna hinum megin sýslumarka en yfir 600 kindur voru fluttar með bíl í gær úr húnvetnskum réttum og yfir í Staðarrétt þar sem eigendur þeirra biðu þeirra langt fram eftir kvöldi í gærkvöld.

Blaðamanni Feykis þótt forvitnilegt að vita hversu margar húnvetnskar kindur hefðu gætt sér á skagfirsku grasi þetta sumarið en fékk þær upplýsingar að tveir hrútar  hafi komið í Staðarrétt. Fengu þeir bílfar aftur heim.

Fleiri fréttir