„Gríðarlegt tækifæri til að koma vöru á framfæri“
Það eru sannarlega spennandi tímar framundan hjá skagfirska handverksfyrirtækinu Skrautmen. Lilja Gunnlaugsdóttir, eigandi Skrautmena, vinnur nú hörðum höndum við að skipuleggja þátttöku í sölu- og markaðssýningunni NY NOW sem haldin verður í Bandaríkjunum dagana 16. -19. ágúst.
Það eru um 2.500 söluaðilar sem taka þátt í sýningunni og rúmlega 25.000 manns sem sækja hana. Sýnendur skiptast í ákveðin þemu; heimili, lífsstíll og handverk, en Skrautmen flokkast undir þemað lífsstíll.
„Við ætlum að einbeita okkur að því að selja silkiklútana með laxaroðinu. Þetta er gríðarlegt tækifæri til að koma vöru á framfæri og því er þetta alveg svakalega spennandi. Það er mikið batterí utan um þetta allt og nú þegar eru auglýsingar komnar á fullt sem eru farin í fyrirtæki víðsvegar um Bandaríkin. Ég hef nú þegar fengið nokkrar fyrirspurnir um klútana og hvar ég verði staðsett nákvæmlega á sýningunni, svo ég tel það lofa góðu en það eitt að komast inn á sýninguna er mikil viðurkenning,“ segir Lilja.
Viðtalið í heild sinni má nálgast í Feyki vikunnar.