Guðni Ágústsson á opnun kosningaskrifstofu Framsóknar á Sauðárkróki
Kosningaskrifstofa Framsóknar á Sauðárkróki verður opnuð annað kvöld, föstudagskvöldið 10. september klukkan 20:30. Guðni Ágústsson fv. ráðherra og framsóknarmaður hefur boðað komu sína á opnunina og mun hann fara þar með ræðu og gamanmál eins og honum einum er lagið.
Í boði verða léttar veitingar auk þess sem gestum gefst tækifæri til að ræða við frambjóðendur framsóknar í Norðvesturkjördæmi. Kosningaskrifstofa Framsóknar á Sauðárkróki er staðsett í Framsóknarhúsinu í Sauðárkróki, Suðurgötu 3.
/Fréttatilkynning