Gunnar Bragi valinn í efsta sæti

Gunnar Bragi Sveinsson
Gunnar Bragi Sveinsson

Framsóknarmenn í Norðvesturkjördæmi héldu kjördæmisþing sitt um nýliðna helgi að Bifröst í Borgarfirði.  Þar var ákveðið með uppstillingu hverjir myndu skipa lista flokksins í komandi kosningum. Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mun leiða listann líkt og hann hefur gert frá síðustu kosningum.

Framboðslisti Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi kosningar er eftirfarandi: 

1. Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. 

2. Elsa Lára Arnardóttir, alþingismaður. 

3. Sigurður Páll Jónsson, útgerðarmaður. 

4. Lilja Sigurðardóttir, sjávarútvegsfræðingur. 

 

5. Jón Kristófer Sigmarsson, bóndi. 

6. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, leiðbeinandi á leikskóla. 

7. Jón Árnason, skipstjóri. 

8. Eydís Bára Jóhannsdóttir, kennari. 

 

9. Einar Örnólfsson, bóndi. 

10. Halldór Logi Friðgeirsson, skipstjóri. 

11. Ísak Óli Traustason, nemi í íþrótta- og heilsufræði. 

12. Gauti Geirsson, aðstoðarmaður ráðherra. 

 

13. Heiðrún Sandra Grettisdóttir, starfsmaður á hjúkrunarheimili. 

14. Kristín Erla Guðmundsdóttir, húsfreyja. 

15. Sigrún Ólafsdóttir, fyrrverandi bóndi. 

16. Gísli V. Halldórsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri.

Fleiri fréttir