Haraldur Benediktsson leiðir lista Sjálfstæðismanna

Haraldur Benediktsson
Haraldur Benediktsson

Talið var í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi í dag og liggur nú ljóst fyrir hverjir skipa fjögur efstu sæti listans fyrir komandi kosningar.  Haraldur Benediktsson mun leiða listann en hann skipar nú annað sæti á eftir Einari K. Guðfinnssyni sem gefur ekki kost á áframhaldandi setu á Alþingi.

 

Fram kemur á vef Sjálfstæðisflokksins að greidd hafi verið 1516 atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. 55 seðlar voru auðir og ógildir en 1461 gild atkvæði.  Haraldur Benediktsson skipar 1. sætið, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir annað, Teitur Björn Einarsson það þriðja og það fjórða Hafdís Gunnarsdóttir.

Fleiri fréttir