Haustsól í Hegranesi
Hér má sjá nokkrar sjóðheitar haustmyndir teknar í Skagafirði, flestar reyndar í Hegranesi. Myndirnar tók Óli Arnar.
Fleiri fréttir
-
Hundgá og „high tea“ í Glaumbæ
Í tilefni af afmæli enska aðalsmannsins Mark Watson (1906–1979) stóð Byggðasafn Skagfirðinga, venju samkvæmt, fyrir dagskrá í Glaumbæ þann 18. júlí sl. Watson var mikill Íslandsvinur og eigum við honum margt að þakka, Þar með talið rausnarlega peningagjöf til viðgerða á gamla torfbænum í Glaumbæ árið 1938, sem átti sinn þátt í því að bærinn hefur varðveist. Watson hefur jafnframt verið titlaður bjargvættur íslenska fjárhundsins og er afmælisdagur hans „Dagur íslenska fjárhundsins“.Meira -
Vatnsnes Trail Run Utanvegahlaup
Einn af fjölmörgum áhugaverðum viðburðum á Eldi í Húnaþingi er „Vatnsnes Trail Run” sem er utanvegahlaup í Húnaþingi vestra. Hlaupið fer fram á föstudaginn 25.7. Boðið er upp á þrjár vegalengdir: 20+ km, 10km og fjölskylduhlaup. Í 10 km og 20+ km hlaupunum verður hlaupið frá Félagsheimilinu á Hvammstanga fallega leið upp í Kirkjuhvamm og svo halda leiðirnar áfram upp fjallið. í 1,5 km fjölskylduhlaupinu er einnig hlaupið frá Félagsheimilinu á Hvammstanga. Skemmtilegur viðburður fyrir náttúruunnendur og hlaupara á öllum getustigum.Meira -
Frábært framtak á folf-vellinum á Hvammstanga
Sagt er frá því á vef Húnaþings vestra að nú á dögunum tóku nokkrir vaskir menn sig saman og smíðuðu palla á folf-völlinn á Hvammstanga. „Það er ánægjulegt að sjá svona frumkvæði hjá þessum óeigingjörnu sjálfboðaliðum. Sveitarfélagið færir öllum hlutaðeigandi sínar bestu þakkir,“ segir í fréttinni.Meira -
Ingibergur bar sigur úr býtum á Opna Húnavökumótinu
Opna Húnavökumót Golfklúbbsins Óss á Blönduósi í samstarfi við Borealis fór fram laugardaginn 19. júlí í mildu veðri á Vatnahverfisvelli. Alls voru 27 keppendur skráðir til leiks og var ræst út stundvíslega kl. 10 af formanni klúbbsins, Eyþóri Franzsyni Wecher, og mótastjóra, Valgeiri M. Valgeirssyni. Leiknar voru 18 holur í punktakeppni með forgjöf í einum flokki.Meira -
Framkvæmdir við Vatnsdalsveg dragast saman
Vegagerðin hefur ákveðið breytingar á framkvæmdum við Vatnsdalsveg. Upphaflega var áætlað að endurbyggja samtals 14,9 kílómetra kafla frá Hringvegi og suður að afleggjara að Undirfellsrétt en síðar var ákveðið að stytta framkvæmdakaflann niður í 13 kílómetra. Nú áformar Vegagerðin að kaflinn verði níu kílómetrar og er ástæðan sögð verða boð um niðurskurð hjá stofnuninni. Byggðarráð Húnabyggðar mótmælir þessari ákvörðun harðlega og krefst svara frá Vegagerðinni og ráðherra samgöngumála.Meira