Hestar og menn á Hótel Varmahlíð
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
05.06.2010
kl. 11.20
Söguseturs íslenska hestsins og Héraðsskjalasafns Skagfirðinga munu opna ljósmyndasýninguna Hestar og menn á Hótel Varmahlíð, sunnudaginn 6. júní nk., kl. 16.00.
Á sýningunni er myndefnið fjölbreytt og spannar liðlega hundrað ár í sögu hestsins. Á boðstólum verða léttar veitingar og allir velkomnir
Sýningin verður uppi í allt sumar og tilvalið fyrir gesti sem eiga leið um Skagafjörð að líta við á hótelinu.
Fleiri fréttir
-
Vonskuveður annan í páskum og Holtavörðuheiði lokað á hádegi
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 06.04.2026 kl. 02.38 oli@feykir.isVeðurstofa Íslands spáir vonskuveðri annan í páskum og eru ýmist gular eða appelsínugular viðvaranir í gildi á landinu fram á þriðjudagsmorgun. Veðrið virðist verða verst á sunnan- og vestanverðu landinu en gil viðvörun tekur gildi á Norðurlandi vestra um kl. 16:00 en gert er ráð fyrir að hún detti úr gildi aðfaranótt þriðjudags. „Austan 15-25 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s, hvassast austantil á svæðinu. Einnig má búast við snjókomu eða skafrenningi með slæmu skyggni og versnandi færð. Varasamt ferðaveður,“ segir í viðvörun Veðurstofunnar.Meira -
„Gæti ekki hugsað mér betri stað“ | Þórunn Inga frá Enniskoti í Víðidal segir frá
Síðast heimsóttum við Helgu Hinriks til Moss í Noregi og þar var nú ekki leiðindunum fyrir að fara. En okkur er ekki til setunnar boðið, við vippum bakpokanum á bakið, tékkum á því hvort vegabréfið sé ekki örugglega á vísum stað og dembum okkur í flug til Dúbaí og það á stríðstímum. Auðvitað engin glóra í þessu ferðalagi ef ekki væri fyrir það að við þurfum að taka hús á frænku Helgu, Þórunni Ingu Kristmundsdóttur, frá Enniskoti í Víðidal en þar ólst hún upp með tvíburasystur sinni. Þær eru fæddar árið 1988 og foreldrarnir eru Kristmundur Ingþórsson og Sigrún Herdis Sigurbjartsdóttir.Meira -
Prestur þarf fyrst og fremst að vera góð manneskja
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf, Lokað efni 05.04.2026 kl. 12.00 oli@feykir.isSéra Gísli Gunnarsson í Glaumbæ í Skagafirði var vígður Hólabiskup þann 14. ágúst 2022. Það er því löngu kominn tími á að spjalla við Gísla um heima og geima. Hann er fæddur snemma árs 1957, sonur Gunnars Gíslasonar, prests og prófasts í Glaumbæ sem einnig var um árabil þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Ragnheiðar Margrétar Ólafsdóttur, safnvarðar við Byggðasafnið í Glaumbæ. Gísli er yngstur í hopi sex systkina. Gísli er giftur Þuríði Kr. Þorbergsdóttur og þau eiga fjögur uppkomin börn; synina Gunnar og Þorberg og dæturnar Margréti og Aldísi Rut.Meira -
Fékk geggjað túbusjónvarp sem tók mjög mikið pláss í herberginu mínu
Sunna Dögg Þorsteinsdóttir er frá Sauðárkróki og með rætur í gamla Lýtingsstaðahrepp og fleiri staði í Skagafirði. Sunna býr á Sauðárkróki, beint á móti æskuheimili sínu með tvö loðbörn, köttinn Nikulás og hundinn LúnuMeira -
Hittnin brást Stólastúlkum og Njarðvík fór heim á valtaranum
Það var talsverð eftirvænting fyrir leik Tindastóls og Njarðvíkur í úrslitakeppni kvenna í körfunni en liðin mættust í Síkinu um kvöldmatarleytið föstudaginn langa. Stólastúlkur áttu prýðilegan leik í Njarðvík en töpuðu naumlega. Það er hinsvegar kristaltært að ef þú setur aðeins niður eitt af 26 3ja stiga skotum þínum í leik þá má andstæðingurinn vera ansi slappur ef hann gengur ekki á lagið. Og því miður var lið Njarðvíkur ekkert í þeim gírnum að gefa einhvern slaka, það tók völdin strax í byrjun. Lokatölur 58-88 og Njarðvík leiðir einvígið 2-0.Meira
