„Hræðslan við fólkið sameinar meirihlutann“
„Það er ekki annað hægt að vera hrærður yfir glæsilegum kosningasigri Vg og óháðra, 24,4% og fullur þakklætis fyrir stuðninginn og traust íbúa á okkur til að þjónusta og vinna fyrir Skagfirðinga næsta kjörtímabil,“ segir Bjarni Jónsson oddviti V listans.
Ekki vantaði mikið upp á að listinn næði þremur fulltrúum í sveitarstjórn og felldi meirihlutann en sá stuðningur sem listinn fékk var jafnframt sá mesti á landinu hjá VG. „Það var svo sannarlega frábær og hæfileikaríkur hópur fólks á listanum og ástæða til að þakka einnig öllum þeim sem hafa tekið þátt í vegferðinni fyrir fólkið í firðinum,“ segir Bjarni sem bendir á annan sigurvegara, Byggðalistann sem hann bindur miklar vonir við að eigi eftir að gera góða hluti í sveitarstjórn og fyrir íbúa alls héraðsins.
„Með þeim eigum við mesta samleið í dag og það voru skýr skilaboð kjósenda að þessi tvö framboð ættu að verkstýra störfum sveitarstjórnar næsta kjörtímabil og taka þar talsvert til hendinni. Með þeim viljum við starfa og var nýju fólki í brúnni hjá Sjálfstæðisflokknum boðið til viðræðna um samstarf. Í bili er það hræðslan við fólkið sem sameinar meirihlutann og þessa tvo flokka sem var svo eftirminnilega hafnað í kosningunum, en flokkarnir biðu sameiginlega sitt versta afhroð frá upphafi í Skagafirði og töpuðu nálægt 400 atkvæðum frá síðustu kosningum.
Hvergi tapaði Framsóknarflokkurinn meiru en í Skagafirði og Sjálfstæðisflokkurinn hlaut hvergi minna fylgi þar sem hann bauð fram á landinu. Vonandi vegnar þessum flokkum betur á komandi kjörtímabili, og ná að greiða úr málum sem þau hafa komið sér og öllum íbúum í leiðinni. Íbúar hafna leyndarhyggju, vilja opna stjórnsýslu, gagnsæi og vönduð vinnubrögð, trausta fjármálastjórn, rétta forgangsröðun, aukna aðkomu að ákvarðanatöku og jafnrétti óháð búsetu. Að því munum við vinna með öllum þeim í sveitarstjórn sem vilja taka upp breytt vinnubrögð,“ segir Bjarni.