Hundrað manns í menntabúðum
Í gær varð sögulegur viðburður í Skagafirði þegar öll skólastig sameinuðust í menntabúðum um tækni í skólastarfi. Um 100 manns tók þátt í málstofum um smáforrit til kennslu, vendikennslu, Fablab o.fl.
Tístað var beint frá menntabúðunum með #menntaspjall. Forsprakkar menntabúða voru þau Ingvi Hrannar Ómarsson, Margrét Björk Arnardóttir og Kristján Bjarni Halldórsson. Meðfylgjandi myndir tóku þau á meðan á menntabúðunum stóð.