Hvernig metum við hið ómetanlega? - Ráðstefna Guðbrandsstofnunar
Guðbrandsstofnun í samstarfi við Bandalag íslenska listamanna, Listaháskóla Íslands, Þjóðminjasafnið og Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands með áherslu á menningarfræði standa að ráðstefnu um gildi menningar. Ráðstefnan verður haldin á Hólum í Hjaltadal 31. mars og 1. apríl nk.
Sjá dagskrá hér:
31. mars
16:00-16:05 Skagfirski kammerkórinn
16:05-16:20 Setning ráðstefnunnar, Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra
16:20-16:30 Ávarp, sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup
16:30-16:45 Skagfirski kammerkórinn
17:00-18:30 Gildin – Fjögur 10 mín. erindi með 10 mín. umræðum eftir hvert þeirra Katrín Jakobsdóttir, Jón Ólafsson, Kolbrún Halldórsdóttir og Guðni Tómasson
19:30 Kvöldverður og menningardagskrá Katrín Gunnarsdóttir, flytur kafla úr dansverkinu Shades of Histosry (2016)
1. apríl
8:30-9:30 Morgunverður
9:45-10:00 Berglind María Tómasdóttir flautuleikari, leikur tónlist eftir Georg Philipp Telemann og Toru Takemitsu
10:00-11:30 Menning – Fjögur 10 mín. erindi með 10 mín. umræðum eftir hvert þeirra Fríða Björk Ingvarsdóttir, Ólafur Rastrick, Margrét Hallgrímsdóttir
11:30-11:45 Kriðpleir leikhópur býður til Krísufundar. Á sviði: Árni Vilhjálmsson, Friðgeir Einarsson og Ragnar Ísleifur Bragason
12:00-13:00 Hádegisverður
13:00-14:30 Listir – Fjögur 10 mín. erindi með 10 mín. umræðum eftir hvert þeirra Arnar Eggert Thoroddsen, Guðmundur Oddur Magnússon, Ólöf Kristín Sigurðardóttir og Sigtryggur Baldursson
14:30-14:45 Halldór Eldjárn og Þórarinn Eldjárn flétta saman ljóðum og hljóðum í Ljóðfærum
15:00-15:45 Pallborð og samantekt, Benedikt Hjartarson stýrir umræðum
16:00 Ráðstefnuslit og kaffi Rán Flygenring og Lóa Hjálmtýsdóttir taka efni ráðstefnunnar saman í myndmáli
—
Ráðstefnugjald er 2.000 kr. Hádegisverður og kaffi innifalið. Skráning á ráðstefnuna er hjá booking@holar.is til 23. mars. Allar nánari upplýsingar veita: Erla B. Örnólfsdóttir erlabjork@holar.is, Hjalti Hugason hhugason@hi.is, Solveig Lára Guðmundsdóttir Solveig.Lara.Gudmundsdottir@kirkjan.is, Ráðstefnugestir greiða sjálfir fyrir þjónustu vegna þátttöku í ráðstefnunni. Ferðaþjónusta er á Hólum. Gisting í tveggja manna herbergi kostar 8.000 kr. nóttin á mann en í eins manns herbergi 9.100 kr. og er morgunverður innifalinn. Kvöldverður á fimmtudag kostar 4.600 kr. Bókun fyrir gistingu og mat er hjá Ferðaþjónustunni á Hólum booking@holar.is.
/Fréttatilkynning