Íbúafundir í lok ágúst vegna sameiningar Akrahrepps og Svf. Skagafjarðar
Stefnt er að því að halda að halda íbúafundi í Svf. Skagafirði og Akrahreppi í lok ágúst vegna mögulegrar sameiningu sveitarfélaganna tveggja.
Þetta kom fram á fundi Byggðarráðs Skagafjarðar sem fundaði í gær, þann 29. júlí.
Á þeim fundi var farið yfir þá vinnu sem að baki er og framundan er varðandi mögulega sameiningu sveitarfélaganna. Framundan er sameiginleg vinnustofa með fulltrúum beggja sveitarfélaga ásamt fyrrnefndir íbúafundir.
/SMH