Íbúafundir í Skagafirði fara fram 7. og 8. febrúar

Frá íbúafundi í Héðinsminni í Akrahreppi 26. ágúst 2021. Mynd: Sæþór Már.
Frá íbúafundi í Héðinsminni í Akrahreppi 26. ágúst 2021. Mynd: Sæþór Már.

Boðað hefur verið til íbúafunda til kynningar á tillögu samstarfsnefndar um sameiningu Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar, sem kosið verður um þann 19. febrúar næstkomandi. Fundunum verður einnig streymt á fésbókarsíðu verkefnisins. Á heimasíðu sameiningarnefndar eru íbúar hvattir til að mæta á fundina og kynna sér álit samstarfsnefndar og kynningarefni sem hægt er að nálgast á vefsíðunni.

Íbúafundir verða haldnir á eftirfarandi stöðum:

  • Miðgarður 7. febrúar kl. 17:00 til 18:30
  • Héðinsminni 7. febrúar kl. 20:00 til 22:00
  •  Höfðaborg 8. febrúar kl. 17:00 til 18:30

  • KK restaurant 8. febrúar kl. 20:30 til 22:00

Á  skagfirdingar.is segir að íbúum sé frjálst að sækja fundi á þeim stöðum og tímasetningum sem þeim best henta en vegna samkomutakmarkana þurfa þeir að skrá sig fyrirfram á heimasíðunni. Fundunum verður jafnframt streymt á fésbókarsíðu verkefnisins og geta þátttakendur í fundarsal, og þeir sem fylgjast með rafrænt, sent spurningar til samstarfsnefndar í gegnum samráðsforritið menti.com en einnig verður hægt að koma ábendingum og fyrirspurnum á framfæri í fundarsal.

Fleiri fréttir