Íbúafundur í kvöld
Íbúafundurum skipulagsmál á Sauðárkróki verður haldinn í Bóknámshúsi FNV, mánudaginn 23. nóvember kl. 20:00.
Á fundinum munu fulltrúar frá ráðgjafafyrirtækinu ALTA kynna vinnu sína við nýtt aðalskipulag Sauðárkróks.
Þar munu þau m.a. fara yfir niðurstöður íbúaþings sem haldið var fyrr á árinu og þær tillögur sem þau hafa mótað á grunni þeirra og annarra upplýsinga.
