Íbúafundur um framtíð Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki
Vegna fyrirliggjandi tillagna um niðurskurð fjárframlaga til Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2011 hefur sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar, í samvinnu við Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki, ákveðið að halda íbúafund um framtíð Heilbrigðisstofnunarinnar, mánudaginn 11. október nk., kl. 20, í sal Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Á fundinn verður heilbrigðisráðherra boðaður ásamt öðrum þingmönnum kjördæmisins. Framsögu á fundinum halda m.a. fulltrúar starfsmanna Heilbrigðisstofnunarinnar, sveitarstjórnar, Hollvinasamtakanna og fleiri. |