Iðnaðarhúsið að Borgarflöt 17-19 risið

Búið er að reisa grind hússins við Borgarflöt 17-19 á Sauðárkróki en þar byggir félagið ÞERS Eignir ehf, iðnaðar- og geymsluhúsnæði. Húsið skiptist í 12 bil sem eru 68fm hvert um sig með fimm metra vegghæð. Eignir ehf, er í eigu tveggja para, Ragnars Helgasonar, Erlu Hrundar Þórarinsdóttur, Þrastar Magnússonar og Sigríðar Kristínar Björnsdóttur.
Að sögn Þrastar var mikill áhugi fyrir þessu verkefni og fengum þeir Ragnar ótal fyrirspurnir í upphafi og því vel gekk að selja þau bil sem í boði voru. Segir hann greinilega vöntun eftir svona húsnæði á Sauðárkróki. Áætluð afhending til eigenda verður um 15. apríl nk.
Er eitthvað við húsið eða bygginguna sem er frábrugðið öðrum húsum?
„Nei, það er ekki hægt að segja það. Það er ekkert verið að finna upp hjólið, en það eru auðvitað ýmis útfærsluatriði og hönnun sem við lögðum upp með, svona praktísk atriði. En þetta er í raun og veru bara iðnaðar- og geymsluhúsnæði sem við byggjum og getur svo hver og einn aðlagað sitt bil að sínum þörfum og rekstri,“ segir Þröstur en nánar verður rætt við hann í næsta Feyki.
Tengd frétt: Geymsluhúsnæði keypt fyrir muni Byggðasafnsins