Ilmur af jólum í „Gamla Lýdó“

Það verður sannkölluð jólastemning í Lýdó á sunnudaginn. Mynd: Sigrún Helga Indriðadóttir
Það verður sannkölluð jólastemning í Lýdó á sunnudaginn. Mynd: Sigrún Helga Indriðadóttir

Það verður mögnuð jólastemning í „gamla Lýdó“ á sunnudaginn kemur. Þá ætla Kvenfélag Lýtingsstaðahrepps, Rúnalist og Lýtingsstaðir að standa fyrir jólamarkaði í Árgarði og opnu húsið hjá Rúnalist og í Torfhúsinu á Lýtingsstöðum.

Hægt verður á kaupa jólavörur og jólamat beint frá býli. Þá verður jólailmur, jólapakkar, jólalög og jólate á boðstólnum. Í tilkynningu um viðburðina segir að opið verði í Árgarði frá klukkan 14-18, í Rúnalist frá klukkan 13-19 og í Torfhúsinu á Lýtingsstöðum frá klukkan 14-18. Í tilkynningunni eru allir hvattir til að taka rúnt í sveitina.

Fleiri fréttir