Íslandsmeistaramótið í bogfimi utanhúss á Sauðárkróki
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
13.07.2015
kl. 14.39
Íslandsmeistaramótið í bogfimi utanhúss verður haldið á íþróttasvæðinu á Sauðárkróki um næstu helgi. Keppt verður í sveigbogaflokki, trissubogaflokki og langbogaflokki. Í hverjum flokki eru svo flokkar karla og kvenna og mismunandi aldursflokkar.
Nánar má lesa um mótið á Facebook/bogfimi og archery.is.