Kaffihús Guðrúnar frá Lundi opnar í dag
Ferðaþjónustan að Sólgörðum í Fljótum opnar í dag 1. júní en þar er ýmislegt í boði s.s. eins og gisting, handverk, sundlaug, leikvölur, grill- og nestisaðstaða og svo Kaffihús Guðrúnar frá Lundi.
Kristín Sigurrós Einarsdóttir segir að vísir að kaffihúsi hafi verið í fyrra á Sólgörðum sem gekk vel og því langaði þau hjón að gera meira úr því í sumar. Bætt hefur verið við sætaplássi og reynt að hafa þetta í gömlum stíl, í anda Guðrúnar. „Við erum með æviágrip hennar bækur og bókakápur, svuntur og poka með tilvitnunum til sölu. Einnig handverk frá sveitungum o.fl. En kaffihúsið sérhæfir sig í vöfflum með rabarbarasultu og rjóma, auk þess seljum við ís frá emmess, kaffi og kalda drykki. Við verðum með eitthvað fleira svona öðru hvoru bæði í veitingum og litla viðburði og svo er auðvitað sundlaugin heit og góð,“ segir Kristín.