Kiddi spáir Stólunum bikarmeistaratitlinum

Fjörið hefst í kvöld!  MYND: ÓAB
Fjörið hefst í kvöld! MYND: ÓAB

Keppni í Domino´s-deildinni í körfubolta hefst í kvöld og sækja Tindastólsmenn lið ÍR heim í Hertz-hellinn í Seljaskóla. Á árlegum blaðamannafundi KKÍ og Domino's nú í vikunni var síðan kunngerð spá fyrirliða og forráðamanna liðanna og var liði Tindastóls spáð öðru sæti í deildinni.

Liði KR er spáð titilinum í karlaflokki og fékk liðið nokkuð afgerandi kosningu, hlaut 426 stig, en ef marka má spána þá verður baráttan um annað sætið hörð. Lið Tindastóls hlaut  362 stig og því spáð öðru sæti í deildinni, Stjarnan fékk 362 stig og lið Hauka í Hafnarfirði 340 stig.

Í Morgunblaðinu í dag fer Kristinn Friðriksson, fyrrum þjálfari og leikmaður Tindastóls með meiru, yfir veturinn framundan í körfunni og hann reiknar með að lið Tindastóls nái ekki sömu hæðum og síðasta vetur, spáir Stólunum fjórða sæti í deildinni. Telur þá hinsvegar geta náð langt í úrslitakeppninni og klikkir síðan út með því að spá Tindastólsmönnum bikarmeistaratitlinum.

Fyrsti leikur Tindastóls er í kvöld gegn liði ÍR og er leikið sunnan heiða. Liði Breiðhyltinga er spáð fallbaráttu. Í annarri umferð mætast lið Tindastóls og Stjörnunnar í Síkinu og má reikna með miklum baráttuleik líkt og jafnan þegar þessi lið mætast. Leikurinn er á sunnudaginn kl. 19:15.

Upphitun fyrir leikinn í kvöld má sjá á TindastóllTV >

Fleiri fréttir