Kiwanisklúbburinn Drangey gefur hlífðarhjálma

Glaðbeittir nemendur 1. bekkjar í Skagafirði þáðu reiðhjólahjálma frá Kiwanisklúbbnum Drangey fyrir utan Árskóla á Sauðárkróki sl. laugardag. Nokkuð napurt var á skólalóðinni en krakkarnir létu kuldann ekki á sig fá og þáðu grillaðar pylsur og svala.

Við tilefnið brýndi Stefán Vagn Stefánsson yfirlögregluþjónn fyrir börnunum mikilvægi þess að muna eftir hjálminum. Um er að ræða árlegt verkefni hjá Kiwanisklúbbnum.

Fleiri fréttir