Körfuknattleikslið Tindastóls á leið til Evrópu
Þátttaka Tindastóls í Evrópukeppni, ENBL, verður nú alltaf raunverulegri og raunverulegri. Dagur Þór Baldvinsson formaður körfuknattleiksdeildarinnar fór til Riga í Lettlandi um helgina á tæknifund keppninnar. Á tæknifundinum var farið yfir ýmis praktísk atriði keppninnar auk þess sem hann hitti fulltrúa andstæðinga okkar og gat byrjað að undirbúa ferðalögin.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
ABBABABB!
Árshátíð 1. -7. bekkja í Varmahlíðarskóla var haldin með glæsibrag síðasta Vetrardag í Miðgarði. Hátíðin hófst á að 1. til 3. bekkur sýndi léttar æfingar sem kölluðust: Íþróttafjör, alskyns hopp og stökk og höfðu hátíðargestir gaman að. Síðan tók við sýning á söngleiknum: Abbababb, eftir Doktor Gunna. Blaðamanni taldist svo til að ca. 30 leikarar hefðu stigið á svið auk dansara og bakraddasöngvara.Meira -
Þórarinn Eymunds sigraði í Meistaradeild KS 2026
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 23.04.2026 kl. 10.07 oli@feykir.isLokarimman í KS-deildinni fór fram föstudagskvöldið 17. apríl. Óhætt er að segja meistarabragur hafi verið á keppninni og mikið lagt undir. Þórarinn Eymundsson tók þetta á lokasprettinum og sigraði einstaklingskeppnina með 36 stig. Í öðru sæti varð Mette Mannseth með 33 stig og í því þriðja Vera Schneiderchen með 30 stig.Meira -
Á sama tíma að ári | Eva Guðbjartsdóttir skrifar
Leikfélag Sauðárkróks frumsýndi á föstudaginn síðastliðinn leikritið Á sama tíma að ári eftir Berndard Slade, í leikstjórn Ingrid Jónsdóttur. Verkið er sett upp í tengslum við Sæluvikuna eins og leikfélagið er vant að gera. Sýningin var einstaklega vel upp sett og hef ég sjaldan setið í leikhúsi þar sem jafn mikið er hlegið. Leikritið er hlýlegt og tekst að fanga á einstaklega mannlegan hátt hvernig tíminn mótar sambönd og sjálfsmynd. Leikmyndin var einföld en áhrifarík og skilaðu sínu.Meira -
Tímar og tækifæri í Skagafirði | Högni Elfar Gylfason skrifar
Skagfirðingar þekkja öðrum fremur hversu mikil lífsgæði felast í því að búa hér. Hér er öflugt atvinnulíf, landbúnaður, sjávarútvegur og samheldið samfélag sem stendur saman á raunarstund. Samfélag sem slíkt er ekki sjálfsagt heldur ávöxtur samheldni og vináttu íbúanna. En það er líka staðreynd að alltaf má gott bæta. Undanfarin ár hefur ýmislegt setið á hakanum. Innviðir hafa víða látið á sjá. Framkvæmdir hafa ekki alltaf fengið nægilegan undirbúning, í sumum tilfellum hefur vantað bæði skýra forgangsröðun og samráð við íbúa, þar má gera betur. Miðflokkurinn vill leggja þar hönd á vogarskálarnar.Meira -
Helga og Sigurður Bjarni fengu afhent starfsmerki UMFÍ
Ársþing Ungmennasambands Skagafjarðar var haldið 20. apríl nk. kl. 17:00 í Húsi frítímans við Sæmundargötu Sauðárkróki en þetta var 106. ársþing UMSS. Á þinginu fengu þau Helga Daníelsdóttir og Sigurður Bjarni Rafnsson afhent starfsmerki UMFÍ en þau hafa bæði unnið mikið og gott starf fyrir skíðadeild Tindastóls.Meira
