Kristján Bjarni og Reynir Snær með lag í Jólalagakeppni Rásar 2
Lagið „Jólin koma“ eftir Kristján Bjarna Halldórsson og Reyni Snæ Magnússon komst í úrslit í Jólalagakeppni Rásar 2. Það var eitt af sjö lögum sem komst áfram en 60 lög voru send inn í keppnina. Lögin verða spiluð á Rás 2 næstu dagana og hlustendur geta tekið þátt í atkvæðagreiðslu. Sigurlagið verður svo tilkynnt sem jólalag Rásar 2 árið 2016.
Eins og margir vita starfar Kristján við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra en Reynir Snær brautskráðist frá skólanum árið 2013 og var áberandi í tónlistarlífi skólans. Hlusta má á lögin í keppninni á heimasíðu Rásar 2 og greiða atkvæði þar.
Jólin koma
Útsetning: Reynir Snær Magnússon
Flytjendur:
Söngur: Hrafnhildur Magnea Ingólfsdóttir
Trompet: Jakob van Oosterhout
Gítarar: Reynir Snær Magnússon
Bassi: Snorri Örn Arnarsson
Trommur: Bergur Einar Dagbjartsson
Píanó og Hammond: Magnús Jóhann Ragnarsson
Útsetning: Reynir Snær Magnússon
Hljóðritað í Stúdíó Paradís.
Umsjón upptöku: Ásmundur Jóhannsson