Króksarinn Blankiflúr með plötu vikunnar á Rás2

Plata vikunnar á Rás2 að þessu sinni er Hypnopompic með listakonunni Blankiflúr en það er að sjálfsögðu hin ofurmagnaða Inga Birna Friðjónsdóttir sem stendur á bak við Blankiflúr. Platan, sem er hennar fyrsta, hefur vakið verðskuldaða athygli en Inga segir tónlistina vera tilraunakennt rafpopp. Engu að síður er engan byrjendabrag að finna og tónlistin metnaðarfull og heilsteypt.

Inga Birna er dóttir Auðar Aðalsteins listakonu og sjúkraþjálfara og Friðjóns læknis á Króknum, elst þriggja systkina. Hún hefur búið víða; í Svíþjóð, Danmörku, á höfuðborgarsvæðinu en talar um Krókinn sem heimabæinn sinn.

Á Rás2 segir: „Tónlistarkonan Inga Birna Friðjónsdóttir gaf á dögunum út sína fyrstu plötu undir nafninu Blankiflúr en gripurinn heitir Hypnopompic. Plötuna, sem inniheldur níu lög, vinnur Inga Birna ásamt þeim Stefáni Erni Gunnlaugssyni og Arnþóri Örlygssyni Lind. Að sögn Ingu Birnu er platan tilraunakennt rafpopp þar sem lögin hafa öll skírskotun í hennar persónulega líf. Umfjöllunarefnin eru ástin og lífið, fyrri sambönd, móðurhlutverkið og náttúran. Platan segir hún að sé fjölbreytt en hafi samt sem áður sterkan heildarsvip Eins og fyrr segir er platan unnin með upptökustjóranum Stefáni Erni Gunnlaugssyni í stúdíó Bambus en hljóðblöndun og jöfnun eru í höndum Arnþórs Örlygssonar Lind.“

Platan verður spiluð í heild sinni eftir tíu fréttir á Rás2 og heyra má kynningar og lög af Hypnopomic út alla vikuna. Hér er hægt að hlýða á Ingu Birnu segja frá lögunum >

 

 

 

Fleiri fréttir