Í tilkynningu frá framleiðendum segir að Sigurbjörn sé þjóðsagnapersóna í lifanda lífi og einn verðlaunaðasti íþróttamaður íslenskrar íþróttasögu. Hann hóf ferilinn ungur með tvær hendur tómar en var fljótur að læra af hestamönnum og bílabröskurum hvernig hann ætti að ná árangri og komast á toppinn. Sigurvilji varpar ljósi á mikinn sigurvegara, dýravin og baráttumann sem hefur áratugum saman verið í fremstu röð af eigin verðleikum.
Króksbíó sýnir myndina SIGURVILJI... í kvöld
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
27.02.2025
kl. 09.00
siggag@nyprent.is
Sigurvilji er íslensk heimildamynd um Sigurbjörn Bárðarson tamningameistara og landsliðsþjálfara og verður hún sýnd í kvöld, fimmtudaginn 26. febrúar, í Króksbíói kl. 20:00. Þeir sem vilja panta miða á myndina er bent á að senda skilaboð á Facebook-síðunni Króksbíós.
Fleiri fréttir
-
Haustþing SSNV: Innviðir Norðurlands vestra mega ekki vera afgangsstærð
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 19.10.2026 kl. 11.45 hinrik@feykir.isHaustþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem haldið var á Hótel Laugarbakka í Húnaþingi vestra 1. október sl., samþykkti ályktun um samgöngu- og innviðamál. Þingið fagnar nýrri samgönguáætlun en bendir á að fjármagn til vega, fjarskipta, raforkuflutninga og hafna í landshlutanum hafi lengi verið langt undir þörf. Þingið krefst þess að fjármögnun innviða á Norðurlandi vestra endurspegli raunverulega þörf landshlutans.Meira -
„Ég hef ekki tölu yfir það hversu margar peysur ég hef prjónað“
Ég heiti Sandra Halldórsdóttir og er fædd árið 1986, uppalin og búsett á Sauðárkróki ásamt fjölskyldu minni. Ég á fjögur börn og eitt barnabarn sem fæddist fyrr á árinu. Ég fluttist suður um tíma til að stunda nám við Háskóla Íslands þar sem ég lærði grunnskólakennarann og tók grunnnám á textílkjörsviði, þá einstæð með tvö börn. Ég ákvað að ljúka ekki náminu fyrr en nokkrum árum seinna þegar ég var flutt aftur á Sauðárkrók og átti von á þriðja barninu. Nú starfa ég sem umsjónarkennari á miðstigi í Árskóla.Meira -
Rabb-a-babb 254: Jenný Lind
Jenný Lind Gunnarsdóttir, árgangur 1988, býr á Blönduósi og er í sambúð með Alex Má Gunnarssyni og eiga þau fimm dætur. Hún er sérkennslustjóri í Leikskóla Húnabyggðar. Jenný Lind er dóttir Gunnlaugar Kjartansdóttur og Gunnars Ólafssonar en stjúpforeldrar eru Jón Ragnar Gíslason og Halldóra Jóhannsdóttir. „Uppalinn að mestu á Blönduósi og svo var ég einnig mikið í Garðshorni í Hörgárbyggð hjá pabba og fjölskyldu.“Meira -
Í syngjandi jólasveiflu í Miðgarði
Gná tónleikar og Hulda Jónasar kynna til sögunnar tónleikana Í syngjandi jólasveiflu þar sem flutt verða jólalög Geirmundar Valtýssonar. Tónleikarnir voru fyrst haldnir í Hörpu fyrir síðustu jól en nú verða jólalögin hans Geira flutt í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð 27. nóvember og reyndar einnig í Salnum í Kópavogi 5. desember.Meira -
KPMG opnar fyrir umsóknir um samfélagsstyrki 2027
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 17.10.2026 kl. 15.30 oli@feykir.isKPMG hefur tekið upp skýrara og markvissara fyrirkomulag við veitingu samfélagsstyrkja á landsbyggðinni. Markmiðið er að tryggja að stuðningur félagsins nýtist þar sem hann getur haft mest jákvæð áhrif og styðji við verkefni sem skapa virði fyrir samfélagið. Með nýrri styrktarstefnu er lögð aukin áhersla á samfélagsleg áhrif verkefna og hvernig þau falla að framtíðarsýn KPMG um langtímaverðmætasköpun fyrir samfélagið. Jafnframt er lögð áhersla á gagnsætt umsóknarferli, skýrari forgangsröðun og betri yfirsýn yfir þann árangur og þau áhrif sem stuðningurinn skilar.Meira
