Kynlíf, kjólar og rabb-a-babb
Í nýjum Feyki sem kom út í dag kennir ýmissa grasa. Í aðalviðtali er Einar Kristinn Guðfinnsson, forseti Aþingis sem brátt lætur af störfum eftir áratuga farsælt starf. Hann segir m.a. frá því þegar hann laumaðist á kaffistofu fiskvinnsluverkstjórans og hringdi í ritstjóra Vísis og bað um vinnu sem blaðamaður. Þá ræðir hann um pólitíkina og þær breytingar sem hafa átt sér stað á þeim vettvangi og svo það sem honum er mikið hugleikið, tengsl hans við Skagafjörð.
Rabb-a-babbið er á sínum stað og að þessu sinni situr María Gréta Ólafsdóttir fyrir svörum og upplýsir lesendur um hin ýmsu leyndarmál.
Margrét Berglind Einarsdóttir frá Hofsósi heldur á áskorendapennanum og Elísabet Sif Gísladóttir og Hlynur Rafn Rafnsson frá Hvammstanga leiða okkur í allan sannleika um mormorssúpu og kókosbolludesert.
Júlíana Alda Óskarsdóttir á Sauðárkróki sýnir okkur hvað hún er með á prjónunum og Rúnar Gíslason frambjóðandi VG á Norðurlandi vestra veltir fyrir sér kynlífi og næstu skref.
Þetta er aðeins sýnishorn af því sem hægt er að lesa í Feyki í dag því margt annað forvitnilegt er á síðum blaðsins.