Leggja til styttri sumarlokun Ársala
Á fundi fræðslunefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar í gær var lagt til að leikskólinn Ársalir á Sauðárkróki verði lokaður í tvær vikur í sumar, í stað fjögurra eins og áður hafði verið ákveðið.
Lagt er til að lokað verði frá 20. júlí til 31. júlí. Áætlaður kostnaður er tæpar fjórar milljónir króna. Fræðslunefnd samþykkti að leggja til við byggðarráð að veita allt að 4 milljónum vegna þessa.