Leiklistarhópur NFNV tekur þátt í Þjóðleik í fyrsta sinn – FeykirTV
Leiklistarhópur NFNV sýnir verkið Útskriftarferðin í kvöld. Leikritið, sem er eftir Björk Jakobsdóttir, var skrifað sérstaklega fyrir Þjóðleik og er á léttu nótunum. FeykirTV leit inn á æfingu sl. þriðjudagskvöld og spjallaði við leikstjórann Halldór Ingólfsson.
„Við byrjuðum æfingar í byrjun mars og höfum verið að æfa við hvert tækifæri. Þær hafa gengið mjög vel en auðvitað koma hindranir sem að við skríðum yfir hægt og rólega,“ sagði Halldór Ingólfsson leikstjóri. Þetta er í fyrsta sinn sem hann spreytir sig á því sviði.
Sýningin hefst kl. 20:00 á Sal Fjölbrautaskólans. Aðeins verður þessi eina sýning. Aðgangur er ókeypis.
https://youtu.be/RtJ22COO-Mc