Lið Tindastóls úr leik í Lengjubikarnum

Lewis var besti leikmaður Stólanna í kvöld en það dugði ekki til. Hér sést kappinn í leik gegn Þór í úrslitakeppninni í vor.  MYND: ÓAB
Lewis var besti leikmaður Stólanna í kvöld en það dugði ekki til. Hér sést kappinn í leik gegn Þór í úrslitakeppninni í vor. MYND: ÓAB

Tindastólsmenn sóttu Þórsara heim í Þorlákshöfn í kvöld í átta liða úrslitum Lengjubikarkeppninnar. Með sigri hefðu Stólarnir boðið stuðningsmönnum sínum upp á ærlegt partí í Síkinu um komandi helgi því úrslitaleikir Lengjubikarsins verða spilaðir á Króknum. Það var því súrt að Þórsarar reyndust sterkari í leiknum og slógu Stólana út með 10 stiga sigri, 85-75.

Jafnt var að loknum fyrsta leikhluta, 19-19, en heimamenn náðu góðum kafla rétt fyrir hálfleik og leiddu 45-38 í hléi.  Stólarnir minnkuðu muninn í þrjú stig, 52-49, eftir að Arnþór setti niður þrist en Þórsarar spiluðu góða vörn sem Stólarnir réðu illa við og voru með ellefu stiga forskot, 66-55, fyrir lokakaflann. Þegar um sjö mínútur voru eftir setti Lewis niður þrist og minnkaði muninn í 71-62 en næstu ellefu stig voru í boði heimamanna sem náðu þar með 20 stiga forystu sem Stólarnir áttu ekki möguleika á að brúa. Pétur og Sigurður Páll sáu til þess að munurinn var ekki vandræðalegur fyrir Stólana með ágætum körfum síðustu tvær mínútur leiksins.

Vance Michael reyndist Stólunum erfiður í kvöld en hann gerði 30 stig og tók 10 fráköst. Þá var risinn Ragnar Z með 14 stig og 9 fráköst. Í liði Tindastóls var Lewis stigahæstur með 21 stig, Townes var með 12 stig og Pétur 10. Helgi Viggós frákastaði mest Stólanna, hirti sjö varnarfráköst. Slök nýting innan teigs (34%) reyndist Stólunum dýrkeypt auk þess sem heimamenn hittu og fráköstuðu betur (37/25).

Fleiri fréttir