Liggja þín tækifæri á netinu?
Námskeið í markaðssetningu á netinu verðuru haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi 13. og 14. Janúar þar sem kynntar verða breytingar og aðferðir í markaðsetningu á netinu með tilkomu m.a. Facebook og Twitter ásamt notkun leitarvéla.
Hver þátttakandi fær úttekt á heimasíðu sinni með leiðbeiningum og ábendingum um hvernig hægt er að ná betri árangri.
Fyrirlesari er Hjörtur Smárason, ráðgjafi ( sjá www.marketingsafari.org ) en hann mun m.a. segja frá því hvernig honum tókst að fá yfir 800.000 manns frá 213 löndum til þáttöku á vefnum án þess að kosta til einni einustu krónu.
Skráning á nordurland.vestra@vmst.is fyrir 10. janúar. Námskeiðið er í boði Vinnumálastofnunar og er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Sjá nánar HÉR