Ljósleiðari á Langholt og Sæmundarhlíð

Verktaki  eru Vinnuvélar Símonar ehf. og hefur vinna við plægingu gengið nokkuð vel og ekki hefur veðrið verið til mikilla trafala fram að þessu. Mynd: Skagafjörður.is.
Verktaki eru Vinnuvélar Símonar ehf. og hefur vinna við plægingu gengið nokkuð vel og ekki hefur veðrið verið til mikilla trafala fram að þessu. Mynd: Skagafjörður.is.

Framkvæmdir hafa staðið við lagningu ljósleiðara frá Varmahlíð að Marbæli auk Sæmundarhlíðar í Skagafirði frá því um mánaðarmót október nóvember. Er hann að hluta til dreginn í rör sem lögð voru samhliða lagningu hitaveitu í Sæmundarhlíð og á kaflanum frá gamla pósthúsinu í Varmahlíð að Grófargili. Annars staðar er ljósleiðarinn plægður beint niður í jörðina án hlífðarrörs.

Á heimasíðu Svf. Skagafjarðar segir að lagningu stofnstrengs um svæðið sé lokið og búið að draga ljósleiðara í rör í Sæmundarhlíð. Unnið er að lagningu heimtauga þar sem ljósleiðarinn er lagður frá stofnstreng og inn til notenda. Stefnt er á að lagningu heimtauga verði lokið fyrir áramót og að ljósleiðarinn verði tekinn í notkun í byrjun næsta árs.

Alls verða um 45 hús tengd ljósleiðara að þessu sinni. Verkefnið er hluti af átakinu Ísland ljóstengt sem er landsátak stjórnvalda í uppbyggingu ljósleiðarakerfa utan markaðssvæða í dreifbýli. Verkefnið hófst formlega síðastliðið vor með 450 milljón króna styrkveitingu fjarskiptasjóðs til 14 sveitarfélaga sem hlutskörpust urðu í samkeppni um þann styrk. Sveitarfélagið Skagafjörður fékk úthlutað tæpri 21 milljón vegna verkefnisins frá fjarskiptasjóði. Við þá upphæð bætast heimtaugagjöld notenda og framlag fjarskiptafyrirtækis til að fjármagna verkið í heild sinni.

Fleiri fréttir