Lögreglan biður fólk að ganga hægt um gleðinnar dyr

Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur sinnt öflugu eftirlit með umferðinni sl. viku. Mikil umferð hefur verið í embættinu og allt of mikill hraðakstur að sögn lögreglu en hún hefur haft afskipti af 322 ökumönnum og kært vegna hraðaksturs. Þessi fjöldi hraðakstursmála er eitthvað sem ekki hefur sést áður á svo skömmum tíma og hvað þá þessum árstíma.

Á Facebooksíðu Lögreglunnar kemur fram að einn ökumaður hafi verið stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Eitt alvarlegt umferðaróhapp varð í Miðfirði, en þar fór bifreið útaf veginum og slasaðist ökumaðurinn það mikið að flytja þurfti hann með þyrlu á Landspítalann.

„Nú þar sem páskahelgin er hafin og margir á ferðinni viljum við hvetja alla til að fara varlega og ganga hægt um gleðinnar dyr,“ segir í færslu Lögreglunnar.

Fleiri fréttir