Lögreglan leggur hald á fíkniefni
Lögreglan á Sauðárkróki stöðvaði í gærkveldi ferð ökumans á þrítugsaldri sem var á leið í gegn um umdæmið. Við leit í bifreið mannsins kom í ljós að fíkniefni voru falin í áldós sem í fyrstu leit út eins og venjuleg gosdós. Við nánari skoðun kom í ljós að maðurinn var með tíu slíkar dósir meðferðis ásamt bókum sem búið var að útbúa í leynihólf.
Maðurinn var færður á lögreglustöðina á Sauðárkróki til yfirheyrslu og telst málið upplýst. Maðurinn má einnig búast við kæru fyrir að aka undir áhrifum fíkniefnum