Lokað fyrir heita vatnið vegna viðgerðar

Vegna viðgerðar á stofnæð þarf að loka fyrir heitavatnsrennsli í neðri bænum á Sauðárkróki sunnudaginn 19. apríl, frá kl. 8:00 og fram eftir degi. Aðeins er um að ræða neðri bæinn. Hlíða- og Túnahverfi munu ekki lenda í lokuninni.

„Í vikunni bilaði stofnæðin inn í bæinn. Glöggir vegfarendur hafa e.t.v. tekið eftir jarðraski við Skagfirðingabúð.  Gert var við til bráðabirgða á miðvikudaginn, en næst komandi sunnudag, 19. apríl kl. 8:00, meðan vonandi flestir eru í fastasvefni, munum við loka fyrir heitavatnið og klára viðgerðina,“ segir í fréttatilkynningu frá Skagafjarðarveitum.

Reynt verður að hraða viðgerð eins og hægt er en hún getur tekið um 6-8 tíma ef ekkert óvænt kemur upp á. „Vonum að sýni biðlund meðan á viðgerð stendur,“ segir loks í tilkynningunni.

Fleiri fréttir