Lukka með Pétur Pan í flutningi 10. bekkjar Árskóla

Nemendur í 10. bekk Árskóla frumsýndu fyrradag leikritið Pétur Pan eftir J.M. Barrie í leikstjórn Guðbrands Ægis Ásbjörnssonar. Sýningin hefur vakið mikla lukku, leikur og öll umgjörð er sögð vera til fyrirmyndar. Sýningar verða fram á sunnudag í Bifröst á Sauðárkróki.

Leikritið fjallar um þrjú systkini. Eitt kvöld kemur strákur inn til þeirra og flýgur með þau til Hvergilands. Þar hitta þau sjóræningja, hafmeyjur, álfa, indijána og týndu drengina og lenda í alls konar ævintýrum.

Sýningar í Bifröst sem hér segir:

  • Föstudagur 20. mars kl. 17:00 (miðapantanir frá kl. 14:00-17:00)
  • Laugardagur 21. mars kl. 14:00 og 17:00 (miðapantanir frá kl. 12.00-17:00)
  • Sunnudagur 22. mars kl. 14:00 og 17:00 (miðapantanir frá kl. 12:00-17:00)

10818351_563722770397440_956580653236401465_o 10982763_563722847064099_1341203510255935369_oMiðaverð er fyrir 5 ára og yngri kr. 500, grunnskólanemendur kr. 1000 og fullorðnir kr. 1500. Miðapantanir í síma 453-5216, vakin er athyglin á því að ekki er tekið við greiðslukortum.

Meðfylgjandi myndir eru fengnar frá Sauðárkrókur-Bærinn undir Nöfunum á facebook.

Fleiri fréttir