Maður ársins 2016
Eins og undanfarin ár stendur Feykir fyrir kjöri á manni ársins. Gefst íbúum á svæðinu og öðrum lesendum Feykis kostur á að velja úr hópi þeirra sem tilnefndir voru af lesendum. Í þetta skiptið bárust sjö tilnefningar. Hægt verður að greiða atkvæði á vefnum Feyki.is eða senda atkvæði í pósti á Feykir, Borgarflöt 1, 550 Sauðárkróki. Kosningin hófst kl. 13 föstudaginn, 23. desember og lýkur kl. 12 á hádegi á nýársdag, 1. janúar.
Auður Björk Birgisdóttir á Hofsósi
Auður er frumkvöðull sem setti af stað verkefni í heimabyggð, Infinity Blue, sem eru róandi miðnæturböð. „ Að auki hefur hún lagt ferðaþjónustunni lið með þessu framtaki og hefur í framhaldinu komið að verkefninu "The Local heart" sem er samvinnuverkefni ferðaþjónustuaðila austan vatna.Auk þess kemur hún mikið að verkefnum tengdum Byggjum upp Hofsós og nágrenni, sem er samstarfshópur íbúa Hofsóss og nágrennis um hvernig megi bæta og efla samfélagið, og stendur einnig fyrir uppákomum á svæðinu. Hún lætur sér annt um samfélagið og fólkið í því,“ segir meðal annars í tilnefningu.
Eva Pandora Baldursdóttir á Sauðárkróki
Eva Pandora fór í framboð fyrir pírata í Norðvesturkjördæmi og er nú þingmaður þeirra. „Hún afrekaði það að vera oddviti pírata og komast á þing og eignast barn allt á nánast sama tíma, þvílíka fyrirmyndinni sem hún er,“ segir m.a. í tilnefningu sem hún fékk.
Eydís Ósk Indriðadóttir á Hvammstanga
Í tilnefningunni segir m.a.: „Ég vel Eydísi því hún er dásamleg manneskja, hún má ekkert aumt sjá, er búin að gera margt gott fyrir samfélagið hér og allir komast í gott skap þar sem Eydís er.“
Ingimar Pálsson á Sauðárkróki
Ingimar hefur rekið reiðskóla í yfir 30 ár, eða frá 1983. Hann hefur m.a. í mörg ár staðið fyrir reiðnámskeiðum fyrir börn í sumrin, við miklar vinsældir. Í tilnefningu sem hann fékk segir m.a. að hann eigi heiður skilið fyrir að halda þessu öfluga starfi úti ár eftir ár.
Ívar Elí Sigurjónson á Sauðárkróki.
Ívar Elí er fimm ára strákur sem hefur glímt við flogaveiki og fór meðal annars í miklar rannsóknir til Boston sl. haust. „Ég sendi öll mín atkvæði á Ívar Elí Sigurjónsson, sem hefur verið að berjast við flogaveiki síðast liðin ár,“ segir meðal annars í tilnefningu sem hann fékk.
Hólmfríður Sveinsdóttir á Sauðárkróki
Í tilnefningunni segir: „Ég mæli eindregið með Hólmfríði Sveinsdóttur hjá Iceproten. Hún er búinn að þróa frábær fæðubótarefni sem hefur bætt líðan margra. Hún stjórnaði líka grunnrannsóknum á ofurkælingu, sem eru undirstaða í betri og bættari gæða fisks en Málmey er fyrsta skipið í heiminum sem svona búnaður er í.“
Sigríður Sigurðardóttir á Stóru-Ökrum í Skagafirði
Sigríður er safnstjóri í Glaumbæ og „hefur undanfarið 20 ár komið Byggðasafninu í Glaumbæ í Skagafirði til fremstu raðar safna á landinu og hlaut í ár safnaverðlaunin sem eru æðstu verðlaun safna á Íslandi. Auk þess sem hún hefur skrifað mikið af þekkingarritum tengdum safnastarfi og auk þess kennt við Háskóla Íslands. Hróður hennar hefur borist víða og líka út fyrir landsteinana og þykir hún einn besti fræðimaður í sínu fagi, afar hógvær kona og lítið fyrir sviðsljósið,“ eins og segir í tilnefningu.