Margir vinnustaðir taka þátt í Hjólað í vinnuna
Átakið Hjólað í vinnuna, á vegum Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, fór af stað í síðustu viku dagana 6. – 26. maí. Að sögn Sigríðar Ingu Viggósdóttur frá Sauðárkróki, sem starfar hjá sambandinu, taka fjölmörg fyrirtæki og vinnustaðir þátt í verkefninu. Hægt er að skrá sig til leiks fram á síðasta dag.
„Fólki finnst oft mikið mál að byrja en þegar maður er komin af stað þá er þetta svo gott og gaman. Á stöðum eins og Sauðárkróki, Hvammstanga, Blönduósi og Skagaströnd ættu allir að geta hjólað allar sínar ferðir á innan við 15 mínútum. Það er gaman að sjá þau fyrirtæki sem eru búin að skrá sig og vonandi að það gangi allt vel hjá þeim. En gaman væri að sjá fleiri skrá sig til leiks,“ sagði Sigríður og bætir við að hún myndi gjarnan vilja að sjá einhvern frá Blönduósi skrá sig til þátttöku.
Ýmsir skemmtilegir leikir eru í gangi, t.d. skráningaleikur þar sem allir sem skrá sig til leiks í eiga möguleika á að vinna flotta vinninga og myndaleikur á Instagram og Facebook.
Þeir vinnustaðir sem taka þátt eru:
Sveitarfélagið Skagafjörður:
- Byggðastofnun
- Ráðhús Sveitarfélagsins Skagafjarðar
- Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
- Sjávarleður/ Atlantic Leather
- Leikskólinn Ársalir
- Vínbúðin Sauðárkróki
- Arion banki hf
- Lyfja Sauðárkróki
- Landsbankinn Sauðárkróki
- KPMG Sauðárkróki
- Advania
- Vegagerðin
Sveitarfélagið Skagaströnd:
- Landsbankinn Skagaströnd
- Lyfjaútibú Skagaströnd
Húnaþing vestra:
- Samband sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
- Tónlistarskóli V-Hún
- Lyfjaútibú Hvammstanga
- Forsvar ehf
- Landsbankinn Hvammstanga
- Karl og Valgerður
- Fæðingarorlofssjóður
- Vinnumálastofnun
- Tengill ehf Hvammstangi
- Ráðbarður sf
- Ráðhús Húnaþing vestra