Markaðsstofa boðar til funda um vegamál
Markaðsstofa Norðurlands er nú orðinn tengiliður ferðaþjónustunnar á Norðurlandi við Vegagerðina. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Markaðsstofunni gefur þetta samkomulag, sem gert var við Vegagerðina, ferðaþjónustunni tækifæri á að koma á framfæri sínum áherslum varðandi þjónustu, viðhald og uppbyggingu vegakerfisins.
Af þessu tilefni hefur Markaðsstofan boðað til funda um vegamál þar sem ferðaþjónustuaðilar eru hvattir til að mæta og koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Niðurstöður fundanna verða svo nýttar til að koma á framfæri við Vegagerðina áherslum um forgangsröðun verkefna á hverju svæði.
Síðustu fundirnir í þessari fundarröð verða á Norðurlandi vestra á fimmtudaginn og verða þeir á eftirtöldum stöðum:
Kaffi Krókur, Sauðárkróki kl. 10:00 – 11:30
Hótel Blönduós, Blönduós kl. 13:00 – 14:30
Sjávarborg, Hvammstanga kl. 15:30 – 17:00