Miðfjarðará önnur aflahæsta laxveiðiá landsins

Það sem af er sumri er Miðfjarðará önnur aflahæsta laxveiðiá landsins en þar höfðu samkvæmt síðustu tölum, veiðst 1996. laxar. 


Blanda er í fjórða sæti á listanum með 1681 lax veiddan. Heildarveiðin í fyrra var hjá Miðfjarðará 6028 laxar og í Blöndu bitu 4829 laxar á krókinn og því víst að báðar árnar langt í land með að ná svipuðum árangri en nóg er eftir af sumri og við því búið að talan hækki.

Hér er top 5 yfir aflahæsku laxveiðiárnar;

Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki. 3250     

Miðfjarðará 1996             

Eystri-Rangá 1885            

Blanda  1681      

Þverá + Kjarará  1300       

Fleiri fréttir