Nanna Rögnvaldar hlaut Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning, Lokað efni
05.09.2025
kl. 09.59
Nanna Rögnvaldardóttir og Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri að lokinni athöfn í Höfða. MYND AF VEF REYKJAVÍKUR
Skagfirðingurinn Nanna Rögnvaldardóttir, rithöfundur og þýðandi, sem ættuð er úr Djúpadal, hlaut í gær Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri afhenti Nönnu verðlaunin við hátíðlega athöfn í Höfða. Alls bárust 71 handrit í keppnina og bar handrit Nönnu sigur úr býtum en það nefnist „Flóttinn á norðurhjarann“.
