Níræður kór í norðurferð
Karlakór Reykjavíkur hyggur á norðurferð þann 12. nóvember næstkomandi og mun halda tónleika í Skagafirði og bruna svo á Siglufjörð. Kórinn syngur í Miðgarði í Skagafirði kl. 14.00, þar sem Karlakórinn Heimir slæst í hópinn og í Siglufjarðarkirkju kl. 20.00.
Með í för verða sópransöngkonan Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, og Anna Guðný Guðmundsdóttur píanóleikari, Þá syngur kórfélaginn og Skagfirðingurinn, Árni Geir Sigurbjönsson tenór, einsöng í nokkrum lögum. Ferðin er liður í að fagna 90 ára afmæli kórsins sem stofnaður var 3. janúar 1926. Stjórnandi Karlakórs Reykjavíkur er Friðrik S. Kristinsson en hann hefur staðið við stjórnvölinn í hátt í þrjá áratugi.