Lokakeppni Norðurlands Jakans í dag

Lokadagur aflraunakeppninnar „Norðurlands Jakinn“ sem hófst sl. fimmtudag  á Hvammstanga verður framhaldið á tjaldsvæðinu á Nöfum á Sauðárkróki í dag klukkan 12:00. Þar munu kraftakarlar reyna með sér í Atlassteinatökum en keppnin samanstendur sex mismunandi greinum. Lokagreinin, keflisglíma, fer fram á útisviði á Hólanesi á Skagaströnd kl. 16:00.

 Aðgangur er ókeypis og eru allir hvattir til þess að mæta og sjá sterkustu menn landsins sýna krafta sína. 

Fleiri fréttir