Norðurljós opnar í dag
Ljósmyndasýningin Norðurljós í Skagafirði opnar í dag kl. 18:00 í Húsi Frítímans. Sýndar eru 22 myndir prentaðar á striga, allar teknar í vetur af norðurljósum í Skagafirði.
Um sölusýningu er að ræða og býður Jón Hilmarsson alla velkomna á sýninguna og sjá norðurljósin í allri sinni dýrð.