„Nota kókosolíu á nánast allt“

Inga Margrét Jónsdóttir er 19 ára gömul Sauðárkróksmær. Hún er að læra viðskipti og hagfræði við FNV en stefnir á förðunarskóla næsta haust. Feykir spurði Ingu Margréti út í daglega förðunarrútínu hennar.  

Hver eru þín helstu áhugamál?

Mín helstu áhugamál eru hreyfing, matur, tónlist og förðun.

11216160_10205984627088973_1793520484_n

Hver er þín daglega förðunarrútína?

Ég mála mig ekki hversdagslega, mér finnst mikilvægt að geta liðið vel í eigin skinni án förðunar. Ég nota góð rakakrem og reyni að viðhalda jafnvægi í húðinni minni með að borða hollt og hreinsa hana vel. Ég hef verið að nota krem og skrúbb frá Murad sem er algjör snilld og ég mæli eindregið með þeim!
Annars ef ég dett í gírinn þá er það ofur einfalt:

1. Ég þríf húðina mína og ekki má gleyma rakakreminu góða. Ég nota frá Murad, Essential C Day Moisture. 

2. Meik. Ég hef verið að nota frá Golden Rose í „stick“ formi, mjög þægilegt til að skyggja andlitið, kaupi þá einn ljósari lit og einn í dekkri kantinum. 

3. Púður. Ég nota Blot Powder frá MAC, það er mjög létt og litarlaust.

4. Augabrúnir. Ég hef notað augnskugga frá Golden Rose síðan 2010 og veit ekkert betra til að fylla upp í brúnirnar og skerpa þær. Til að „highlighta“ undir og í kring nota ég hvítan eyeliner frá Sleek.

5. Svo er ég alveg yfir mig hrifin af „Face Contour Kit“ frá Sleek. Ég nota það til að skyggja andlitið í endann, hendi svo maskara á mig, smá kinnalit og ekki má gleyma varalitnum. Voila! Ég hef ekki enn fundið „hinn eina sanna maskara“, en ég mun halda áfram leitinni.

dagl.förð.

Hver er þín uppáhalds förðunarvara?

Það er án efa „Face Contour Kit“ frá Sleek. Eftir að ég notaði það fyrst hefur það ekki fengið frí. Eitthvað sem allir ættu að hafa eitt stykki af í snyrtitöskunni.

Face Countour Kit

Hvenær byrjaðir þú að farða þig?

Þegar ég var í 7. bekk. Ég hafði gífurlegan áhuga á öllu sem við tengdist förðun og fannst mjög gaman að prófa mig áfram. Mamma mín var mjög dugleg að hjálpa mér með val á vörum og kynna mig fyrir allskonar merkjum.

11263762_10205984626968970_1317498491_n

Hvað er þitt versta „förðunarslys“?

 

Án efa mjög ýktar augabrúnir og sólarpúður í massavís. Það var líka svakalega flott að vera með vel klesst og fín augnhár í den.

En svona almennt, hver eru þá algeng „förðunarslys“ að þínu mati?

Ég er mjög mikil augabrúnamanneskja og finnst mikilvægt að halda þeim frekar í nátturulegri kantinum, of þunnar, of dökkar, of ýktar og of allt er aldrei fallegt. Svo er ekki hægt að endurtaka nógu oft að „blenda“ augnskuggann, skörp skil og dökkur augnskuggi upp að augabrún er ekki beint augnkonfekt.

11258607_10205984626888968_2054616632_n

Hvað er þitt helsta náttúrulega leyndarmál að betra útliti?

Kókosolía og nóg vatn! Ég drekk rosalega mikið af vatni og nota kókosolíu í nánast allt. Hún er frábær sem rakagjafi og ég nota hana í staðinn fyrir body lotion, læt hana í endana á hárinu, hægt að nota hana sem djúpnæringu og svo er hún frábær í að fjarlægja make-up! Annars er rosalega mikilvægt að hreinsa húðina vel, næra hana og nota maska. Skrúbba líkamann vel í sturtu, það kemur blóðflæðinu af stað.

kókosolía

Lítur þú upp til einhvers einstaklings þegar kemur að förðun?

Ég elska að skoða fallegar farðanir og nota instagram mjög mikið við það. En þeir einstaklingar sem ég fylgist mest með eru Samantha Ravndahl, Huda Kattan, Sonjdra Deluxe, Linda Hallbergs og Ariel Diaz.

insta

Ef þú mættir velja hvern sem er í heiminum til að kíkja í snyrtitöskuna hjá, hvern myndir þú velja?

Vá, það eru svo margir, en ég held að Rihanna yrði fyrir valinu. Væri meira en til í að gægjast í töskuna hjá förðunarfræðingnum hennar. Hún er alltaf fullkomin.

57th GRAMMY Awards - Arrivals

Eitthvað að lokum?

Ekki vera hrædd við að prófa! Það er rosalega gaman að vera með fallegar farðanir, þungar eða léttar, þegar maður er að fara eitthvað fínna. Þar gildir máltækið „Æfingin skapar meistarann“ vel og ég sjálf elska að fikta með allskonar farðanir. Annars er það bara að muna eftir brosinu!

sdf

 

Fleiri fréttir